Gangstéttar og tröppur við Seljaskóla endurnýjaðar – rétt fyrir kjördag
Endurnýjun gangstétta og trappa við Seljaskóla hefur tekist vel, rétt áður en skólinn verður kjörstaður á morgun. Skammt frá hafa íbúar sjálfir hafist handa við að þrífa og mála vegg sem hefur beðið málunnar í um tíu ár.
Lokið hefur verið við endurnýjun gangstétta og trappa við Seljaskóla í Breiðholti. Framkvæmdin hefur tekist vel og svæðið við skólann er nú mun snyrtilegra og öruggara fyrir gangandi vegfarendur.
Tímasetningin er ekki alveg óviðeigandi. Seljaskóli verður kjörstaður á morgun, laugardag, og því má segja að borgin hafi náð að klára aðkomuna rétt áður en kjósendur ganga þar inn. Ekki seinna vænna.
Á sama tíma er önnur tiltekt hafin við skólann, að þessu sinni að frumkvæði íbúa. Veggur við Seljaskóla, sem er í eigu nærliggjandi íbúðafélags, hefur lengi verið illa farinn eftir veggjakrot. Borgin málaði vegginn síðast fyrir 10 árum, kláraði ekki að mála vegginn og án samráðs við fólkið sem býr þarna, síðan hafa íbúar beðið í um tíu ár.
Þolinmæðin virðist nú á þrotum. Íbúarnir hafa ákveðið að taka málið í eigin hendur, undirbúa vegginn sjálfir með háþrýstiþvotti og mála hann að nýju á eigin vegum. Þar verður því ekki beðið eftir næstu framkvæmdalotu, næstu úttekt eða næsta svari.
Bæði verkefnin bæta ásýnd svæðisins við Seljaskóla. Annað sýnir hvað opinber framkvæmd getur skilað þegar hún loks er kláruð. Hitt sýnir hvað gerist þegar íbúar verða einfaldlega þreyttir á biðinni.
Við Seljaskóla verður því kosið á snyrtilegri aðkomu á morgun og nærliggjandi veggur fær líka loksins sitt atkvæði frá íbúum.
