← Allar fréttir
#gangstéttir Okkar Breiðholt

Gangstéttir endurnýjaðar við Strandasel og Stíflusel – framkvæmdin finnst þó ekki á framkvæmdakorti borgarinnar

Unnið er að endurnýjun gangstétta við Strandasel og Stíflusel í Seljahverfi, kærkominni framkvæmd í hverfi þar sem víða hefur verið kallað eftir betra viðhaldi. Verkið er þó hvergi sjáanlegt á framkvæmdakorti borgarinnar, sem á samkvæmt eigin lýsingu að gefa „góða mynd af því sem er í gangi í borginni hverju sinni“

Unnið að því að fjarlægja gangstéttirnar
Unnið að því að fjarlægja gangstéttirnar Mynd: Okkar Breiðholt

Unnið er að endurnýjun gangstétta við Strandasel og Stíflusel í Seljahverfi, þar sem ónýtar gangstéttir eru rifnar upp og nýtt yfirborð lagt. Framkvæmdin er kærkomin í hverfi þar sem ástand gönguleiða hefur víða verið orðið bágborið og íbúar lengi kallað eftir betra viðhaldi á grunninnviðum.

Verkið virðist þó hafa farið heldur hljóðlega af stað. Það er að minnsta kosti ekki að finna á framkvæmdakorti Reykjavíkurborgar, þar sem borgin segist birta upplýsingar um „framkvæmdir, malbikun og afnotaleyfi í Reykjavík“. Þar er jafnframt tekið fram að um sé að ræða „lifandi gögn“ sem breytist reglulega og eigi að „gefa góða mynd af því sem er í gangi í borginni hverju sinni“.

Í þetta sinn virðist kortið þó hafa misst af gangstéttunum í Seljahverfi.

Endurnýjunin við Strandasel og Stíflusel er engu að síður jákvætt skref. Gangstéttar eru meðal þeirra innviða sem skipta mestu í daglegu lífi íbúa, ekki síst fyrir börn, eldri borgara og fólk með skerta hreyfigetu. Slétt og örugg gönguleið er ekki skrautverkefni heldur grunnþjónusta.

Reykjavíkurborg kynnti framkvæmdakortið á sínum tíma sem leið til að gera íbúum auðveldara að fylgjast með verkum í borginni, meðal annars hvað væri framundan, í gangi eða lokið. Það er góð hugmynd en til þess að kortið nýtist sem skyldi þurfa framkvæmdirnar helst líka að rata inn á það.

Gangstéttirnar eru sem sagt komnar í framkvæmd, þótt framkvæmdin sjálf hafi ekki enn fundið leiðina á kortið.

Gangstétt við Stíflusel