← Allar fréttir
#íbúafundir Okkar Breiðholt

Íbúar Breiðholts báðu framboðin um svör í ÍR-heimilinu

Íbúafundur um málefni Breiðholts var haldinn í ÍR-heimilinu 29. apríl 2026, þar sem fulltrúar framboða til borgarstjórnarkosninga sátu fyrir svörum. Upptaka af fundinum, spurningar íbúa og svör framboðanna eru nú aðgengileg á vef Okkar Breiðholts.

ÍR kynning á íbúafundinum með framboðunum í Reykjavík
ÍR kynning á íbúafundinum með framboðunum í Reykjavík

Íbúafundur um málefni Breiðholts var haldinn í ÍR-heimilinu 29. apríl, þar sem fulltrúar framboða til borgarstjórnarkosninganna í Reykjavík sátu fyrir svörum. Fundurinn var sameiginlegt framtak ÍR, Okkar Breiðholts og Íbúasamtakanna Betra Breiðholts.

Á fundinum var sjónum beint að þeim málum sem brenna helst á íbúum hverfisins: húsnæði og uppbyggingu, skóla og íþróttum, samgöngum, umhverfi, velferð og stöðu nærþjónustu. Framboðin kynntu áherslur sínar, en meginefni kvöldsins var samtalið við íbúa og spurningar úr sal.

Fundurinn var hluti af víðara átaki til að tryggja að málefni Breiðholts fengju raunverulegt vægi í kosningabaráttunni. Fyrir fundinn söfnuðust fjöldi spurninga frá íbúum en þær voru dregnar saman í sautján spurningar, sem síðar voru sendar formlega til allra framboða. Svörin hafa nú verið tekin saman á sérstakri síðu þar sem hægt er að bera afstöðu flokkanna saman, meðal annars til uppbyggingar í Norður-Mjódd, endurnýjunar gangstétta, Græna Gímaldsins, samgangna og þjónustu við börn og ungmenni.

Upptaka og nánari upplýsingar um fundinn eru aðgengilegar á síðu íbúafundarins hjá Okkar Breiðholti. Þá má skoða spurningar íbúa og svör framboðanna á sérstakri yfirlitssíðu.

Fundurinn sýndi að Breiðhyltingar ætla sér ekki að vera áhorfendur að eigin framtíð heldur virkir þátttakendur í henni.

Svör framboða við spurningum íbúa