← Allar fréttir
#grænagímaldið Okkar Breiðholt

Innri endurskoðun gagnrýnir stjórnsýslu vegna Græna gímaldsins

Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar telur að stjórnsýsla borgarinnar vegna Græna gímaldsins við Álfabakka 2a hafi verið ábótavant. Í óbirtri skýrslu er meðal annars bent á óskýrt ferli, veik skjölun og að breytingar á deiliskipulagi árið 2019 hafi verið gerðar án tilskilinna heimilda.

Útsýni á Græna Gímaldið úr íbúð í Árskógum
Útsýni á Græna Gímaldið úr íbúð í Árskógum

Innri endurskoðun og ráðgjöf Reykjavíkurborgar telur að ýmsir annmarkar hafi verið á stjórnsýslu borgarinnar í tengslum við uppbyggingu vöruhússins við Álfabakka 2a, sem í daglegu tali hefur verið nefnt Græna gímaldið. Þetta kemur fram í skýrsludrögum sem Morgunblaðið hefur undir höndum, en niðurstöðurnar hafa enn ekki verið birtar opinberlega.

Í skýrslunni segir að stjórnsýslan hefði mátt vera markvissari, skýrari og betur skjalfest. Sérstaklega er bent á að þörf hafi verið á skýrari skilmálum, vandaðri vinnubrögðum við gerð skipulagsgagna og betri yfirsýn yfir umfangsmikið leyfisferli.

Morgunblaðið greinir jafnframt frá því að þeir aðilar sem stóðu að breytingum á deiliskipulagi lóðarinnar árið 2019 hafi ekki haft heimild til þess. Um er að ræða alvarlega athugasemd, enda hafði skipulagsbreytingin veruleg áhrif á forsendur framkvæmdarinnar.

Í umfjöllun blaðsins kemur einnig fram að borgaryfirvöld hefðu getað tekið athugasemdir íbúa til frekari skoðunar á fyrri stigum málsins. Uppbygging hússins hefur lengi verið umdeild í Breiðholti, meðal annars vegna stærðar þess, staðsetningar og þess hvernig málið var kynnt og afgreitt.

Skýrslan hefur verið lengi í vinnslu, en niðurstöður hennar liggja nú fyrir í drögum. Málið varpar nýju ljósi á þá gagnrýni sem íbúar hafa árum saman sett fram: að ferlið í kringum Græna gímaldið hafi verið óskýrt, illa rökstutt og með of litlu tilliti til nærumhverfisins.