← Allar fréttir
#ÍR Okkar Breiðholt

Ný LED-lýsing komin við ÍR-heimilið – kærkomin framkvæmd, þótt sumarið sé mætt

Ný LED-götuljós hafa verið sett upp á bílastæðinu við ÍR-heimilið, úrbótaverkefni sem fagna ber þótt það komi í upphafi sumars. Um leið þarf að endurskoða aðkomu svæðisins í heild, með öruggu sleppistæði fyrir börn og skýrari gönguleiðum um svæðið.

Ný LED-lýsing komin við ÍR-heimilið – kærkomin framkvæmd, þótt sumarið sé mætt
Mynd: Okkar Breiðholt

LED-götuljós hafa verið sett upp á bílastæðinu við ÍR-heimilið í Skógarseli, framkvæmd sem ÍR hefur lengi kallað eftir. Lýsing á svæðinu hefur um árabil verið talin ófullnægjandi, ekki síst yfir dimmustu mánuðina þegar hundruð barna og foreldra sækja æfingar á svæðið síðdegis og á kvöldin.

Ljósin eru nú komin upp í upphafi sumars, þegar þörfin fyrir þau er vissulega minni en hún verður í haust. Framkvæmdin er engu að síður bæði nauðsynleg og jákvæð og fagna ber því að hún sé loks orðin að veruleika. Betri lýsing eykur öryggi, bætir aðkomu og gerir svæðið við ÍR-heimilið snyrtilegra og notendavænna.

Uppsetning ljósanna leysir þó ekki öll vandamál á svæðinu. Aðkoma barna að ÍR-heimilinu þarf að endurskoða í heild sinni. Þar vantar skýrt og öruggt sleppistæði fyrir foreldra sem keyra börn á æfingar og sækja þau aftur. Umferð getur orðið þétt á álagstímum og aðstæður óskýrar fyrir börn sem fara milli bíla, gangstétta og íþróttahúss.

Sama gildir um tengingu við strætó. Endurhugsa þarf hvar og hvernig börn fara í og úr vögnum við svæðið, svo leið þeirra verði öruggari og skýrari. Keyrt hefur verið á börn á svæðinu áður, þó sem betur fer ekki með alvarlegum afleiðingum.

Nýju ljósin eru því gott skref en næsta verkefni blasir við: að gera allt svæðið öruggara fyrir börnin sem nota það á hverjum degi.

Aðkoma að bílastæðum við ÍR heimilið