← Allar fréttir
#grænagímaldið Okkar Breiðholt

Walkout.is varpar ljósi á ástand innviða í borginni

Á Walkout.is má sjá ábendingar íbúa um ástand gangstétta og annarra innviða í Breiðholti, auk ítarlegrar tímalínu um sögu Græna gímaldsins við Álfabakka 2a. Íbúar eru hvattir til að skrá fleiri ábendingar og gera viðhaldsþörf hverfisins sýnilega.

Ástand innviða í Breiðholti á walkout.is
Ástand innviða í Breiðholti á walkout.is Mynd: Okkar Breiðholt

Á Walkout.is má nú sjá ábendingar íbúa um ástand gangstétta, gatna, götulýsingar og annarra innviða í Breiðholti á einu korti. Þar hafa íbúar merkt við skemmdar gangstéttir, skemmdir, rusl og önnur atriði sem hafa áhrif á daglegt líf í hverfinu. Markmiðið er að gera það sýnilegt sem oft týnist í einstökum tilkynningum, athugasemdum og tölvupóstum: hvar viðhaldsþörfin er mest og hversu víða hún blasir við.

Vefurinn sýnir ekki aðeins ástandið í dag heldur hefur þar einnig verið sett upp ítarleg saga og tímalína Græna Gímaldsins við Álfabakka 2a. Þar er farið frá upphaflegum skipulagshugmyndum árið 2009, í breytingar á deiliskipulagi, lóðarúthlutun, byggingarleyfi, kjötvinnsluleyfið og síðari afskipti eftirlitsaðila. Tímalínan dregur saman hvernig eitt umdeildasta skipulagsmál Breiðholts þróaðist skref fyrir skref.

Walkout.is er þannig ekki aðeins kort yfir brotnar gangstéttar. Það er líka minnisbanki hverfisins — um það sem hefur verið vanrækt, það sem hefur verið ákveðið og það sem íbúar vilja fá upp á borðið.

Íbúar Breiðholts eru hvattir til að fara inn á vefinn og skrá ástand gangstétta og annarra innviða í sínu nærumhverfi. Því fleiri ábendingar sem berast, þeim mun skýrari verður myndin af raunverulegri stöðu hverfisins.

Walkout.is - Þegar stjórnmálamenn tala, göngum við

Græna Gímaldið við Árskóga