← Allar fréttir
#graffiti Okkar Breiðholt

Nemendur Seljaskóla sköpuðu 56 metra listaverk við skólann

Nemendur í Seljaskóla hafa málað 56 metra vegglistaverk við skólann í góðu samstarfi við foreldra, nágranna, skóla, borgarstarfsfólk og fyrirtæki. Verkefnið spratt úr hvatningu Ungmennaráðs Breiðholts um jákvæðari umræðu og gaf börnum tækifæri til að hafa skapandi áhrif á eigið nærumhverfi.

Nýmálaður veggur af nemendum Seljaskóla
Nýmálaður veggur af nemendum Seljaskóla Mynd: Nemendur Seljaskóla

Nemendur á unglingastigi í Seljaskóla hafa málað 56 metra vegglistaverk við skólann, eftir undirbúning sem staðið hefur yfir í allan vetur. Verkið er unnið í samstarfi foreldrafélags Seljaskóla, nágranna, myndmenntakennara skólans Margréti Gyðu Jóhannsdóttir, götulistamannsins Árna Más Þ. Viðarssonar, starfsfólks borgarinnar og fleiri aðila í hverfinu.

Á veggnum var áður götulistaverk sem hafði staðið frá árinu 2012. Nýja verkefnið spratt ekki upp úr óánægju eða ágreiningi, heldur úr jákvæðri áskorun frá Ungmennaráði Breiðholts, sem hvatti fullorðna til að vanda orðin sín og tala uppbyggjandi um hverfið. Markmiðið var að gefa börnum og ungmennum vettvang til að hafa sýnileg og jákvæð áhrif á eigið umhverfi.

Verkið tengist beint tiltektinni sem hófst við skólann fyrr í maí. Í frétt Okkar Breiðholts var fjallað um að veggurinn, sem er í eigu íbúa, hefði lengi verið illa farinn og þarft að mála hann upp á nýtt. Vísir fjallaði um verkefnið í vikunni og sagði frá því að lokahönd yrði lögð á verkið á sumarhátíð skólans

Verkið er hluti af víðara samtali um Breiðholt, þar sem íbúar, skólar, foreldrar, fyrirtæki og borgarstarfsfólk vinna saman að því að styrkja nærumhverfið. Það sem skiptir mestu er þó að börnin sjálf fengu að vera gerendur, ekki áhorfendur.

Þar sem áður var veggur er nú 56 metra yfirlýsing frá ungmennum Seljaskóla: Breiðholt er okkar hverfi og við getum gert það bjartara saman.

Nýmálaður veggur af nemendum Seljaskóla